Leita á síðunni:

 

Stefnt að því að afhenda Edinborgarhúsið um sjómannadagshelgina

- 16/04/2007
Edinborgarhúsið
Edinborgarhúsið
Það hefur verið sýndur áhugi á staðnum, bæði hér heima við og annars staðar frá en við teljum það skipta mjög miklu máli að aðilarnir sem taka að sér reksturinn þekki allavega til á svæðinu“, segir Hermann.
Hafist var handa við að færa Edinborgarhúsið aftur í upprunalegt horf fyrir um tveimur árum og var unnið að því þar til fjármagn var uppurið. Þá veitti Ísafjarðarbær styrk til endurbyggingar hússins auk þess sem Glitnir afhenti forsvarsmönnum þess 1,5 milljóna króna styrk.

Húsið var byggt árið 1907 og er eitt viðamesta timburgrindarhús sem byggt hefur verið á Íslandi. Það var teiknað af Rögnvaldi Á. Ólafssyni sem nefndur hefur verið fyrsti íslenski arkitektinn. Fjölbreytt starfsemi hefur farið fram í Edinborg í gegnum tíðina, en áður en það varð menningarhús var þar meðal annars fiskvinnsla og verslun. Nú er þar til húsa Listaskóli Rögnvalds Ólafssonar, upplýsingamiðstöð ferðamanna og ferðaþjónustufyrirtækið Vesturferðir á sumrin.

Tekið af bb.is