Leita á síðunni:

 

Smíðavöllur rekinn á Ísafirði

Guðlaug Aðalrós - 11/06/2008
Samningur um rekstur smíðavallar á Ísafirði var undirritaður í sal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í morgun. Smíðavöllurinn var opnaður á Ísafirði kl. 13 í dag og verður hann starfræktur til 11. júlí. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum Ísafjarðarbæjar, Vestfirskra verktaka og Eimskipa....

Brúarsmíðin hefst í dag

Guðlaug Aðalrós - 07/04/2008
Séð inn Mjóafjörð
Séð inn Mjóafjörð
Hafist verður handa við brúarsmíði í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi í dag. Til stóð að byrja strax eftir páska en leiðindaveður setti strik í reikninginn. „Við erum að fara að byrja á brúnni núna, Vestfirskir verktakar mæta í dag og byrja að slá upp fyrir stöplunum....

Björn Jónsson lætur af störfum

Guðlaug Aðalrós - 07/03/2008
Garðar þakkar Birni gott samstarf
Garðar þakkar Birni gott samstarf
« 1 af 3 »
Í dag föstudaginn 7. mars 2008 var Björn Jónsson kvaddur með virktum á kaffistofu Vestfirskra í nýja Grunnskólanum. Björn verður 65 ára á mánudaginn og hefur ákveðið af því tilefni að láta af störfum. Um leið og Garðar Sigurgeirsson þakkaði Birni, farsælt og ánægjulegt 22 ára samstarf sem hann líkti við gott hjónaband, færði hann Birni blóm og gjafakort í kveðjuskyni ásamt langþráðum starfslokasamningi. Í samningnum segir að einu sinni í mánuði sé Birni heimilt að mæta á skrifstofu Vestfirskra Verktaka og þiggja þar "blautan koss" af vörum skrifstofudömunnar og hressingu úr möppunni góðu að honum loknum og að samningurinn gildi á meðan Björn hafi heilsu og getu til að innheimta.

Minni Hlíð

Guðlaug Aðalrós - 11/01/2008
Bolvíkingurinn Sigurður Hannesson
Bolvíkingurinn Sigurður Hannesson
« 1 af 2 »
Vestfirskir verktakar hafa undanfarna mánuði unnið að því að reisa nýtt íbúðarhús við Minni Hlíð í Bolungarvík en þar hefur ekki verið byggt íbúðarhús á vegum einkaaðila síðan fyrir 1990. Búið er að loka húsinu og verið er að einangra og klæða loft og veggi.