Leita á síðunni:

 

Framkvæmdir hafnar við íbúðir aldraðra

Guðlaug Aðalrós - 15/07/2011
Ljósm: Víkari.is
Ljósm: Víkari.is
Framkvæmdir við nýjar íbúðir fyrir aldraða í Bolungarvík hófust í vikunni en fyrsta skóflustungan að byggingunni var tekin í lok síðasta mánaðar. Húsið mun standa við Aðalstræti og tengjast öðrum íbúðum aldraðra, sem eru í eigu Bolungarvíkurkaupstaðar, með sameiginlegum stigagangi. Um er að ræða þriggja hæða byggingu sem mun telja 15 íbúðir sem eru 70 - 90 fermetrar að stærð, en auk þess er rúmgóður kjallari undir allri byggingunni. Áætlað er að verð minni íbúðanna verði 19 milljónir en að þær stærri kosti 24 milljónir.

Það er Byggingarfélag heldri borgara í Bolungarvíkur sem stendur að baki byggingunni og er áætlað að húsið verði orðið fokhelt 1. desember næstkomandi. Byggingaverktaki er Vestfirskir verktakar ehf en bolvíska fyrirtækið Þotan ehf sér um að grafa fyrir grunninum.

Tekið af bb.is

Nýrri vélarsamstæðu komið fyrir í Mjólká

Guðlaug Aðalrós - 13/07/2011
Ljósm: Steinar R. Jónasson
Ljósm: Steinar R. Jónasson
« 1 af 2 »
Fyrsti hlutinn í nýrri vélarsamstæðu Mjólkárvirkjunar var hífður inn í hús í dag. Vestfirskir verktakar ehf., hafa unnið að stækkun og breytingu á stöðvarhúsi virkjunarinnar frá því í byrjun apríl og hafa sjö menn að jafnaði unnið við verkið og allt upp í tólf á álagstímum. Steinar R. Jónasson, stöðvarstjóri, segir verkið vel á veg komið og framkvæmdina á áætlun.

„Steypuvinnan hefur gengið vel og búið er að gera kjallaran klárann fyrir vatnsrásina að vatnshverflinum. Sjálf túrbínan verður síðan steypt föst um miðjan júlí. Síðan verður gert hlé á vélaruppsetningu fram yfir verslunarmannahelgi. Þá tekur við mánaðar törn og er reiknað með að hægt verði að hleypa vatni á vélina um miðjan september og prófunum verði lokið fyrir 1. október,“ segir Steinar....

Fyrsta skóflustungan að nýjum íbúðum aldraðra

Guðlaug Aðalrós - 27/06/2011

Það var stór dagur hjá eldri borgurum í Bolungarvík í dag þegar Ingibjörg Guðfinnsdóttir tók fyrstu skóflustunguna að nýjum íbúðum aldraðra í bænum. Það er  Byggingarélag heldri borgara í Bolungarvík sem stendur að baki byggingunni.


Í tilefni af fyrstu skóflustungunni að húsinu var haldin falleg athöfn þar sem Kristný Pálmadóttir, væntanlegur íbúi í húsinu, hélt stutta tölu og séra Agnes Sigurðardóttir blessaði framkvæmdirnar.

 

Húsið mun standa við Aðalstræti og mun með sameiginlegum stigagangi tengjast öðrum íbúðum fyrir aldraða sem eru í eigu Bolungarvíkurkaupstaðar. Um er að ræða þriggja hæða byggingu sem mun telja 15 íbúðir sem eru 70 - 90 fermetrar að stærð en auk þess er rúmgóður kjallari undir allri byggingunni. Áætlað er að verð minni íbúðanna verði 19 milljónir en að þær stærri kosti 24 milljónir.


Framkvæmdir við íbúðir aldraðra verða í höndum Vestfirskra verktaka ehf og er reiknað með að það taki 18 mánuði að fullklára bygginguna en stefnt er að því að húsið verði orðið fokhelt 1. desember næstkomandi.

 

Tekið af vikari.is

 

Meðfylgjandi mynd frá athöfninni tók Margrét Lilja Pétursdóttir.

Vestfirskir verktakar endurmúra Pollgötublokkina

Guðlaug Aðalrós - 20/06/2011
« 1 af 2 »
Vestfirskir verktakar áttu lægsta tilboðið í viðgerðir á blokkinni við Pollgötu á Ísafirði. Tilboðið hljóðaði upp á 15,7 milljónir króna en ísfirska fyrirtækið Spýtan bauð einnig í verkið. Felst verkið í að endurmúra útveggi blokkarinnar og mála. Samkvæmt útboðslýsingu eru áætluð verklok í byrjun september.
Tekið af bb.is