Síðasta íbúðin að Hafnarstræti 19
Guðlaug Aðalrós - 07/12/2007
Vestfirskir verktakar eru um þessar mundir að innrétta síðustu ókláruðu íbúðina að Hafnarstræti 19 og ganga framkvæmdir vel að sögn Bergsteins Gunnarssonar umsjónarmanns verksins. Íbúðin var fokheld þegar Vestfirskir tóku við henni og var því byrjað á því að hólfa hana niður, setja upp milliveggi og þess háttar.
Fær þakið þitt að anda?
Guðlaug Aðalrós - 07/12/2007
Menn geta lent í ýmsu og á dögunum tóku Vestfirskir að sér, einu sinni sem oftar, að skipta um þak á húsi. Flest vitum við hvernig þaksperrur líta út en á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig ónóg öndun getur farið með þaksperrur á aðeins 30 árum.
Framkvæmdir við nýbyggingu grunnskólans ganga vel
Guðlaug Aðalrós - 07/12/2007
Unnið er að því þessa dagana að koma fyrir gluggum og glerja. Þegar því er lokið er skólinn orðinn alveg lokaður og því ekki lengur auðvelt fyrir óprúttna að komast inn. Þess má til gamans geta að það fara 275 m2 af gleri í nýbyggingu skólans.





