Leita á síðunni:

 

Vestfirskir Verktakar leggja land undir fót

Guðlaug Aðalrós - 05/10/2007
Í vikunni sem leið fjölmenntu VV ásamt mökum til Montréal Kanada. Mikil ánægja var með ferðina og allir sammála um að hún hafi heppnast einstaklega vel, gott veður, mikið hægt að versla, margt að sjá og gott að borða. Látum myndirnar tala sínu máli.

Safnahúsið á Ísafirði

Guðlaug Aðalrós - 07/09/2007
Safnahúsið á Ísafirði
Safnahúsið á Ísafirði

Vestfirskir verktakar sáu um byggingu sýningar- og geymsluhúss Byggðasafns Vestfjarða á sínum tíma. Nýlega barst okkur þessi einstaklega fallega mynd af safninu en hana tók Ágúst Atlason áhugaljósmyndari og vefhönnuður hjá Snerpu nú í sumar. Viljum við færa honum kærar þakkir fyrir að deila henni með okkur.


"Kaupfélagshúsið" tekið í gegn að utan

Guðlaug Aðalrós - 28/08/2007
Kaupfélagshúsið fær yfirhalningu
Kaupfélagshúsið fær yfirhalningu
Vestfirskir Verktakar vinna nú að því að flísaleggja norðurgafl Kaupfélagshússins svokallaða. Búið er að mála húsið að utan og er þess því ekki langt að bíða að vinnupallar verði fjarlægðir.

Framkvæmdir við Grunnskólann á Ísafirði á áætlun

Guðlaug Aðalrós - 28/08/2007
Nýbygging grunnskólans er farin að taka á sig mynd
Nýbygging grunnskólans er farin að taka á sig mynd
Að sögn Garðars Sigurgeirssonar yfirumsjónamanni framkvæmda við Grunnskólann á Ísafirði er verkið á áætlun. Langt er komið með að pússa og múra skólann að utan....