Leita á síðunni:

 

Turn slökkvistöðvarinnar fær yfirhalningu

Guðlaug Aðalrós - 28/08/2007
Vinnupallar VV við turn slökkvistöðvarinnar á Ísafirði
Vinnupallar VV við turn slökkvistöðvarinnar á Ísafirði
Eins og fram kom í frétt á vef Bæjarins besta hafa glöggir vegfarendur um Fjarðarstrætið á Ísafirði sjálfsagt tekið eftir því að vinnupallar Vestfirskra verktaka hafa risið við turn slökkvistöðvarinnar....

Brú yfir Reykjafjörð

Guðlaug Aðalrós - 05/07/2007
Staurar undir steypumót
Staurar undir steypumót
« 1 af 2 »

Brúarsmíðin yfir Reykjafjörð er hafin samhliða smíði brúar yfir Hópið. Að sögn Sveins Inga "yfirbrúarsmiðs" miðar báðum verkum vel og þakka menn fyrir þá fádæma veðurbliðu sem hefur verið inni í Djúpi það sem af er sumars.

Rétt skal vera rétt

Guðlaug Aðalrós - 05/07/2007
Brú yfir Hópið
Brú yfir Hópið
« 1 af 5 »
Ábending hefur borist ritstjóra um að brúin sem Vestfirskir eru að smíða inn í Djúpi er yfir Hópið, sem er nafn á affallinu úr Sveinhúsavatni, ekki Vatnsfjarðarós. Þetta leiðréttist hér með og þökkum við glöggum lesenda fyrir ábendinguna.

Endurbætur Litlabæjar langt komnar

Guðlaug Aðalrós - 02/07/2007
Litlibær í Skötufirði
Litlibær í Skötufirði
Unnið er á fullu við að koma Litlabæ í Skötufirði í upprunalegt horf. Bærinn er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Kristján Kristjánsson, bóndi í Hvítanesi, segir að húsið verði að mestu leyti klárað í sumar. Það eru Vestfirskir verktakar ehf. sem sjá um framkvæmdirnar....